Um listamanninn

Jón Baldur Hlíðberg fæddist í Reykjavík 1957. Á unga aldri tók að bera á miklum áhuga á náttúrufræði, þó einkum fuglum. Þessi áhugi á fuglum sameinaðist teikniáráttu sem síðan varð til þess að hann fór að sækja námskeið í teikningu við Myndlistaskólann í Reykjavík veturinn 1982-83. Þaðan lá leiðin í Myndlista og handíðaskóla Íslands, en þar var hann við nám 1983-1985. Nú liggur fyrir allnokkurt safn rita ýmissa útgefanda myndskreytt af honum. Auk þess hefur Jón teiknað mikinn fjölda mynda í ýmis kennslurit, veggspjöld og fleira fyrir bæði innlenda sem erlenda aðila. Eins hefur Jón gert fjölmörg frímerki svo nokkuð sé nefnt. Fyrsta sýning Jóns var opnuð í Hafnarborg, Hafnarfirði í október 1999. Í kjölfarið hafa fylgt margar sýningar smáar sem stórar.